„Við hjá Kómedíuleikhúsinu og finnski rithöfundurinn Tapio Koivukari unnum leikgerðina í sameiningu upp úr samnefndri bók Tapios, Ariasman. Tapio sendi á okkur nokkrar blaðsíður í senn, sem við prófuðum og sendum honum svo punkta til baka
Viðtal
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Við hjá Kómedíuleikhúsinu og finnski rithöfundurinn Tapio Koivukari unnum leikgerðina í sameiningu upp úr samnefndri bók Tapios, Ariasman. Tapio sendi á okkur nokkrar blaðsíður í senn, sem við prófuðum og sendum honum svo punkta til baka. Þannig þróaðist þetta í endanlegt handrit, sem Tapio á fyrst og fremst heiðurinn af, þetta er hans texti,“ segir Elfar Logi Hannesson leikari, en þrjár sýningar Kómedíuleikhússins á Vestfjörðum á einleiknum Ariasman verða í Tjarnarbíói nú í janúar og febrúar. Leikritið fjallar um eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar, Baskavígin árið 1615, þegar 31 baskneskur skipsbrotsmaður var veginn af vestfirskum bændum.
„Ég las bók Tapios þegar hún kom út fyrir
...