Landsnet hefur náð samningum við alla landeigendur vegna lagningar jarðstrengs milli Akureyrar og Dalvíkur, Dalvíkurlínu 2. Morgunblaðið sagði frá því í september að viðræður við eigendur tveggja jarða í Hörgársveit hefðu gengið illa
Dalvíkurlína Frá lagningu Dalvíkurlínu 2 milli Akureyrar og Dalvíkur.
Dalvíkurlína Frá lagningu Dalvíkurlínu 2 milli Akureyrar og Dalvíkur. — Ljósmynd/Verkís

Ólafur Pálsson

olafur@mbl.is

Landsnet hefur náð samningum við alla landeigendur vegna lagningar jarðstrengs milli Akureyrar og Dalvíkur, Dalvíkurlínu 2.

Morgunblaðið sagði frá því í september að viðræður við eigendur tveggja jarða í Hörgársveit hefðu gengið illa.

Unnið að fínstillingu

Nú eru samningar sum sé í höfn en Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir að vinna við strenginn liggi niðri í vetur.

Nú sé unnið að fínstillingu á leiðinni með Vegagerðinni en reiknað er með að vinna við strenginn hefjist aftur með vorinu.

Í dag liggur loftlína á milli Akureyrar og Dalvíkur, Dalvíkurlína 1.

...