Fyrsta umferð alþjóðlega bridsmótsins WBT Masters var haldið í Hörpu í gær. Nítján sveitir keppa á mótinu, þar af fjórar íslenskar. Meðal keppenda eru Hollendingarnir Sjoert Brink og Bas Drijver og Pólverjarnir Michał Klukowski og Jacek Kalita sem eru núverandi handhafar Bermúdaskálarinnar. Þar eru einnig Bandaríkjamennirnir John Hurd, Vincent Demuy og Gavin Wolpert. Mótið er annað af tveimur alþjóðlegum bridsmótum sem haldin eru í tónlistarhúsinu í vikunni. WBT Masters er hluti af alþjóðlegri mótaröð en því lýkur með úrslitaleik á fimmtudag. Síðar um kvöldið hefst svo árleg Bridshátíð í Hörpu sem stendur fram á sunnudag.