Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Matvælaráðuneytið segir matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands vinna að því að gera tillögur að nauðsynlegum neyðarbirgðum matvæla hér á landi ef raskanir yrðu á aðfangakeðjum. Matvælaráðuneytið kveðst eiga von á því að fá tillögurnar afhentar síðar á þessu ári.
Þetta kemur fram í svari matvælaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins um það hvort ráðuneytið telji hægt að tryggja fæðuöryggi Íslendinga verði kornbirgðir í landinu aðeins til eins mánaðar ef kæmi til stórfelldrar truflunar á vöruflutningum til og frá landinu.
Nýlega var greint frá því í Morgunblaðinu að ef innlend hveitiframleiðsla stöðvast, eins og útlit er fyrir, yrðu aðeins mánaðarbirgðir af hveiti til í landinu í senn í stað þriggja til fjögurra mánaða. Fram kom
...