Jakob Þ. Möller fæddist í Reykjavík 28. október 1936. Hann lést á Vífilsstöðum 14. janúar 2025.
Foreldrar hans voru hjónin Gunnar J. Möller, hæstaréttarlögmaður og forstjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur, og Ágústa S. Möller. Systur hans eru: Jóhanna, f. 1938, Þóra, f. 1942 og Helga, f. 1950.
Árið 1968 kvæntist Jakob Þórunni Wathne, cand. juris, dóttur Soffíu og Stefáns Wathne. Þau skildu. Sonur þeirra er Gunnar Stefán, f. 10. júní 1969, athafnamaður, BA í stjórnmálafræði og sovétfræðum frá Harvard-háskóla.
Seinni kona hans var Maria Isabel Contreras. Þau skildu.
Jakob ólst upp í Garðastræti 43 til 14 ára aldurs, er hann flutti með fjölskyldu sinni á Ægisíðu 90. Hann gekk í Miðbæjarskóla og Gagnfræðaskóla Austurbæjar og varð stúdent frá MR 1956.
...