Sýningin Dýr. Avatar. Vél. var opnuð á Svavarssafni á Höfn í Hornafirði fyrir helgi en hún stendur til 13. apríl. Þar sýna listamennirnir Kolbeinn Hugi, Sasa Lubinska og Jo Pawlowska, Unnur Andrea Einarsdóttir og Panja Göbel myndbandsverk
Framtíð Úr verki Kolbeins Huga.
Framtíð Úr verki Kolbeins Huga.

Sýningin Dýr. Avatar. Vél. var opnuð á Svavarssafni á Höfn í Hornafirði fyrir helgi en hún stendur til 13. apríl. Þar sýna listamennirnir Kolbeinn Hugi, Sasa Lubinska og Jo Pawlowska, Unnur Andrea Einarsdóttir og Panja Göbel myndbandsverk. Sýningarstjóri er Jo Pawlowska.

Dýr. Avatar. Vél. er sýning sem veltir fyrir sér framtíð líkama okkar. Mörkin á milli sjálfs og vef-sjálfs eru að mást út. Á meðan þau eru hverfandi stendur eftir spurning um hver við erum og hver við verðum, í fljótandi heimi tæknimenningar,“ segir í tilkynningu.

Unnur Andrea og Panja Göbel sýna vídeóinnsetninguna „Technoflesh“ sem tengist sýningu þeirra í Noregi árið 2024 þar sem listamennirnir söfnuðu gögnum um heilastarfsemi þátttakenda. Kolbeinn Hugi sýnir „BeastQuest“,

...