Ég trúi því að með Áslaugu Örnu sem formann Sjálfstæðisflokksins sé framtíð flokksins björt.
Sigurður Kári Kristjánsson
Sigurður Kári Kristjánsson

Sigurður Kári Kristjánsson

Eftir að hafa sótt framboðsfund Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll er ekki annað hægt en að fyllast mikilli bjartsýni fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

Framboð Áslaugar Örnu markar nýtt upphaf í Sjálfstæðisflokknum. Það er ferskur blær yfir framboði þessarar ungu framsæknu konu sem boðar bjarta framtíð fyrir flokkinn.

Sjálfstæðisfólk á öllum aldri, úr öllum landshlutum, vill greinilega styðja þá framtíðarsýn sem Áslaug Arna boðar og stendur fyrir. Það sýndi sá eindrægni stuðningur sem hún fékk á fundinum.

Fullburða og sterkur leiðtogi

Okkur sem stutt höfum Áslaugu Örnu varð strax ljóst þegar hún fór að láta að sér kveða í stjórnmálum að þar færi efnileg stjórnmálakona

...