Fjölmargar aðgerðir eru á teikniborðinu hjá Sorpu til að mæta skerðingu á þjónustu sem verður þegar endurvinnslustöðinni á Dalvegi í Kópavogi verður lokað 1. september. Ákveðið hefur verið að ný stöð verði byggð á Glaðheimasvæðinu í Kópavogi en áætlað er að bygging hennar geti tekið allt upp undir fjögur ár.
Um 178 þúsund heimsóknir voru á endurvinnslustöðina við Dalveg í fyrra. Það er 18% allra heimsókna á höfuðborgarsvæðinu, jafn mikið og við Breiðhellu og Ánanaust. Flestar heimsóknir eru á Sævarhöfða. Ljóst er að álag á aðrar stöðvar mun aukast mikið á þeim 1-3 árum sem tekur að byggja nýju stöðina eftir að lokað verður á Dalvegi.
Á fundi stjórnar Sorpu nýverið kom fram að meðal mótvægisaðgerða sem til greina koma er að koma upp tímabundinni endurvinnslustöð á þeirri lóð sem verður fyrir valinu á Glaðheimasvæðinu. Önnur hugmynd er að stækka
...