Fjöldi Palestínumanna fékk að snúa aftur til síns heima á norðurhluta Gasasvæðisins eftir að Ísraelsstjórn og hryðjuverkasamtökin Hamas náðu samkomulagi um að sex af gíslum samtakanna yrðu látnir lausir
Gasasvæðið Íbúar á norðurhluta Gasasvæðisins sjást hér fótgangandi á leiðinni til heimila sinna eftir að þeir fengu heimild til þess í gærmorgun.
Gasasvæðið Íbúar á norðurhluta Gasasvæðisins sjást hér fótgangandi á leiðinni til heimila sinna eftir að þeir fengu heimild til þess í gærmorgun. — AFP/Omar Al-Qattaa

Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

Fjöldi Palestínumanna fékk að snúa aftur til síns heima á norðurhluta Gasasvæðisins eftir að Ísraelsstjórn og hryðjuverkasamtökin Hamas náðu samkomulagi um að sex af gíslum samtakanna yrðu látnir lausir.

Ísraelsmenn höfðu neitað að hleypa fólkinu aftur til norðurhluta Gasasvæðisins, þar sem þeir sögðu að Hamas-samtökin hefðu ekki staðið við sinn hluta af vopnahléinu sem gekk í gildi fyrir rúmri viku. Ísraelska forsætisráðuneytið gat hins vegar staðfest seint á sunnudagskvöldið að sættir hefðu náðst í deilunni.

Fyrsti áfangi vopnahlésins hefur haldið að mestu leyti, en ráðgert er að Hamas-samtökin leysi 33 gísla úr haldi á þeim tíma sem fyrsti áfanginn nær til. Ísraelsstjórn lýsti því hins vegar yfir í gær að átta af gíslunum 33 væru þegar

...