Sænska landhelgisgæslan stöðvaði í fyrradag flutningaskipið Vezhen frá Búlgaríu eftir að ljósleiðari á milli Svíþjóðar og Lettlands skemmdist á botni Eystrasalts um helgina. Áhöfn þess er sökuð um að hafa dregið akkeri skipsins eftir hafsbotni, en á …

Sænska landhelgisgæslan stöðvaði í fyrradag flutningaskipið Vezhen frá Búlgaríu eftir að ljósleiðari á milli Svíþjóðar og Lettlands skemmdist á botni Eystrasalts um helgina. Áhöfn þess er sökuð um að hafa dregið akkeri skipsins eftir hafsbotni, en á myndum sem sænskir fjölmiðlar birtu í gær sést að akkerið er brotið.

Herskip frá Lettlandi fór á vettvang í fyrradag til að kanna skemmdirnar, og hófu saksóknarar í Svíþjóð þegar rannsókn á því sem þeir sögðu vera gróft skemmdarverk, en það var unnið innan lögsögu Svía. Útgerð skipsins hefur neitað allri sök.