Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti um helgina á fjölmennum fundi stuðningsmanna í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, að hún gæfi kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins, sem hefst 28
Baksvið
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti um helgina á fjölmennum fundi stuðningsmanna í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, að hún gæfi kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins, sem hefst 28. febrúar.
Þar með varð hún fyrst til þess að gefa sig fram í kjöri nýrrar forystu flokksins, eftir að Bjarni Benediktsson formaður tilkynnti að hann sæktist ekki eftir endurkjöri og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður gaf það frá sér.
Þar með fækkaði í hóp mögulegra formannsefna flokksins, en það er nokkuð samdóma álit að nýr formaður verði að koma úr þingflokknum, sem leiðir stjórnarandstöðu í upphafi nýs kjörtímabils.
...