80 ár frá frelsun Auschwitz, sem varð að samnefnara helfarar gyðinga

Þess var minnst í gær, 27. janúar, að 80 ár eru liðin frá frelsun útrýmingarbúða nasista í Auschwitz í Póllandi.

Að þessu sinni var stjórnmálamönnum ekki hleypt að hljóðnemanum, heldur var þeim sem lifðu af vistina í búðunum gefið orðið.

Ekki eru margir eftir sem muna hrylling helfararinnar. Fyrir nasistastjórninni í Þýskalandi vakti að útrýma öllum gyðingum. Sex milljónir gyðinga létu lífið í helförinni, helmingur þeirra í útrýmingarbúðum, sem sérstaklega voru hannaðar í því skyni.

Þjóðverjar reistu helstu útrýmingarbúðirnar í Póllandi. Í Kulmhof, Belzec, Sobibor og Treblinka voru 1,6 til 1,8 milljónir gyðinga teknar af lífi. Fáir lifðu af og á árunum 1943 og 1944 voru þær jafnaðar við jörðu.

Til stóð að gera það sama í Auschwitz.

...