Ferðamenn Ekki eru allir glaðir yfir ferðaþjónustunni.
Ferðamenn Ekki eru allir glaðir yfir ferðaþjónustunni.

Faraldur fer um álfuna, túristaandúð, og fólki finnst að sér þrengt.

Ferðamönnum er ekki lengur tekið eins fagnandi og áður var þegar útlendingurinn var gulls ígildi í fátækum suðurlöndum.

Nú eru annmarkarnir komnir í ljós því fjöldinn er orðinn svo gegndarlaus.

Massatúrismi er ekkert grín og með undirboðnum flugmiðum hugsa þeir sér til hreyfings, sem hvorki eiga eyðslueyri né ætla að opna budduna meira en til hálfs. Þetta vekur litla hrifningu hjá heimafólki sem horfir upp á þennan massa taka frá sér húsnæði og aðra virkt, eins og nágranna sem það þekkir en ekki aðeins töskudragandi útlendinga á ferðinni á öllum tímum.

Yfirvöld í aðþrengdustu löndum massatúrismans eru farin að hlusta á íbúana og leita ráða, eins og að banna

...