Örlygur Kristfinnsson
Samkaup áforma nú að reisa nýjan verslunarkjarna á Siglufirði. Það er afar gleðilegt að fyrirtækið vilji fjárfesta í nýjum húsakynnum og bæta þannig og auka þjónustu sína. Og fyrstu kynningarmyndir sýna jafnvel ekki ósnotrar byggingar. Með einu meginverslunarrými – og „í framhaldi koma minni smávöruverslanir“ í álmu þar við hlið.
Gallinn er sá að allt er þetta með mjög nútímalegu sniði sem fellur ekki að gamalli bæjarmynd Siglufjarðar – sem fyrirtæki, félög og einstaklingar hafa á undanförnum áratugum lagt mikla áherslu á (og fjármuni í) að varðveita og skerpa. Og þessar fyrirhuguðu nýbyggingar verða „ofan í“ gömlum byggingum sem hafa verið endurreistar með glæsibrag og þjóna mikilvægu hlutverki – og að öðru leyti á dýrmætu opnu svæði fast við smábátahöfnina. Þar sem okkur hafði
...