Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Rannsóknir benda til að sóun matvæla á einu ári á Íslandi jafngildi því að hver einstaklingur hér á landi hafi sóað að meðaltali um 160 kílóum af mat á árinu 2022. Er þar um að ræða alla matarsóun sem á sér stað allt frá frumframleiðslu matvæla til heimilanna í landinu. Tæplega helmingur allrar matarsóunar á Íslandi á sér stað í frumframleiðslu matvæla. Um 40% matarsóunar er á heimilum og jafngildir hún rúmlega 63 kílóum á hvern íbúa á árinu.
Þessar upplýsingar koma fram á vefsíðu Umhverfis- og orkustofnunar þar sem birt hefur verið endanleg skýrsla um niðurstöður mælinga á matarsóun sem náðu yfir alla virðiskeðju matvæla, þ.e. allt frá frumframleiðslu og vinnslu, dreifingu, smásölu, veitinga- og matarþjónustu og til heimila. Niðurstöðurnar sýna að matarsóun á sér fyrst og
...