Baldvin Þór Magnússon úr UFA sló eigið Íslandsmet í 1.500 metra hlaupi þegar hann kom í mark á 3:39,67 sekúndum í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöll í gærkvöldi. Fyrra met Baldvins Þórs í greininni var 3:41,05, sem hann setti einmitt á Reykjavíkurleikunum fyrir rétt tæpu ári
Frjálsar
Gunnar Egill Daníelsson
Ásta Hind Ómarsdóttir
Baldvin Þór Magnússon úr UFA sló eigið Íslandsmet í 1.500 metra hlaupi þegar hann kom í mark á 3:39,67 sekúndum í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Fyrra met Baldvins Þórs í greininni var 3:41,05, sem hann setti einmitt á Reykjavíkurleikunum fyrir rétt tæpu ári.
Englendingarnir Thomas Bridger og William Rabjohns komu á eftir Baldvin en sá fyrrnefndi varð annar á 3:40,15 mínútum, sem er hans besti árangur. Rabjohns varð þriðji á 3:48,03 og bætti sömuleiðis sinn besta árangur.
Í 1.500 metra hlaupi kvenna kom Eleanor Strevens frá Englandi fyrst í mark á 4:19,21 mínútu. Aníta Hinriksdóttir úr FH
...