Fyrirmyndir mínar í dag eru einstaklingar sem þora að hrósa, deila og upphefja annað fólk.
Kristín Elfa Axelsdóttir, sviðsstjóri reikningsskila og stjórnendaupplýsinga hjá ELKO.
Kristín Elfa Axelsdóttir, sviðsstjóri reikningsskila og stjórnendaupplýsinga hjá ELKO.

Ég á ekki beint minningu frá Kvennafrídeginum en ég var ekki orðin há í loftinu og ekki komin með kosningarétt þegar ég gekk um með X-V-barmmerki í úlpunni minni og beið spennt eftir því að kjósa Kvennalistann. Það gekk svo ekki sem skyldi þar sem Kvennalistinn var hættur í framboði þegar ég fékk loksins kosningarétt. Ég hef alltaf verið jafnréttissinni og finnst að allir eigi að hafa jafna möguleika óháð kyni. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim konum sem ruddu veginn að betri og auknum réttindum kvenna,“ segir Kristín Elfa Axelsdóttir, sviðsstjóri reikningsskila og stjórnendaupplýsinga hjá ELKO.

Kristín Elfa er á því að það séu mikil forréttindi að búa og starfa á Íslandi. „Þar sem möguleikar kvenna í atvinnulífinu eru til jafns óháð kyni. Við eigum mikið af flottum konum sem eru í forsvari stærstu fyrirtækja Íslands og megum vera stolt af því.“

...