Gengi sjávarútvegsfélaganna hefur lækkað nokkuð í kjölfar loðnufrétta.
Gengi sjávarútvegsfélaganna hefur lækkað nokkuð í kjölfar loðnufrétta. — Morgunblaðið/Börkur Kjartansson

Loðnuleit stendur enn yfir án endanlegra niðurstaðna. Hafrannsóknastofnun greindi frá því eftir lokun markaða á föstudaginn að bráðabirgðaniðurstöður loðnumælinga gæfu til kynna að ráðgjöf um engar veiðar veturinn 2024/2025 yrði ekki breytt.

Gunnar Erlingsson, skuldabréfamiðlari í markaðsviðskiptum Arionbanka, segir að heilt yfir hafi tíðindin ekki mikil áhrif á markaði. Þannig gerðu aðilar á gjaldeyrismarkaði ekki ráð fyrir að loðna myndi finnast, auk þess sem ekki var gert ráð fyrir henni sérstaklega í hagspám. Þar af leiðandi höfum við ekki séð sérstök viðbrögð, hvorki á gjaldeyrismarkaði né skuldabréfamarkaði.

„Hlutabréfamarkaður er hins vegar næmari fyrir fréttum af niðurstöðum loðnuleitar og lækkuðu skráðu sjávarútvegsfélögin til að mynda í fyrradag. Þá er ekki öll von úti þar sem enn er verið að leita og jákvæðar niðurstöður frekari loðnuleitar

...