Nýir hlaðvarpsþættir um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar árið 2019 eru nú aðgengilegir á vef Ríkisútvarpsins og á hlaðvarpsveitum. Þættirnir eru samstarfsverkefni RÚV og RTÉ á Írlandi. Athygli vekur að þættirnir eru teknir upp á ensku, þar með talin…
Hvarf Jón Þröstur Jónsson sem leitað hefur verið frá árinu 2019.
Hvarf Jón Þröstur Jónsson sem leitað hefur verið frá árinu 2019.

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Nýir hlaðvarpsþættir um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar árið 2019 eru nú aðgengilegir á vef Ríkisútvarpsins og á hlaðvarpsveitum. Þættirnir eru samstarfsverkefni RÚV og RTÉ á Írlandi. Athygli vekur að þættirnir eru teknir upp á ensku, þar með talin viðtöl við íslenska viðmælendur, en hægt er að nálgast þrjár útgáfur af þáttunum. Sú fyrsta er á ensku, önnur á ensku með íslenskum texta í spilara á vef RÚV og sú þriðja er svokölluð íslensk aðlögun sem útvarpað er á Rás 1. Þá útgáfu má finna undir útvarpsflipanum efst á vefsíðu RÚV.

Anna Marsibil Clausen, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, gerði þættina ásamt Liam O'Brien frá RTÉ. Hún segir að ákveðið hafi verið að taka öll viðtölin á ensku til að ná til eins breiðs hóps hlustenda og unnt er. Ekki sé hægt að taka viðtöl um

...