Mjög hefur dregið úr áhuga á „loftslagsbreytingum“, hvað þá „hamfarahlýnun“, hjá kjósendum. Til marks um þetta er til dæmis kjör Donalds Trumps sem vill ekki láta slíkar kenningar draga þróttinn úr bandarísku efnahagslífi.
Blaðamaður hjá Wall Street Journal skrifar pistil um viðhorfsbreytingu sem sé að verða í þessum efnum og segir að í „þrjá áratugi varstu skilgreindur sem rugludallur og „loftslags-afneitari“, einhver sem þvermóðskulega hafnaði „útkljáðum vísindum“, ef þú samþykktir ekki trúna á að líf á jörðinni stæði frammi fyrir yfirvofandi útrýmingu vegna „hlýnunar jarðar“ og síðar „loftslagsbreytinga“. Það að heil vísindagrein, loftslagsvísindin, hefði getað farið alvarlega út af sporinu vegna hjarðhegðunar og sjálfumgleði var ekki talið mögulegt. Víða er þessi kredda enn
...