Jarðskjálftar og eldsumbrot voru steinsnar frá orkuverinu og allt í beinni í heimsfréttunum.
Konurnar í HS Orku samankomnar í Svartsengi í upphafi árs í fyrsta sinn síðan skrifstofur fyrirtækisins þar voru rýmdar vegna jarðhræringa fyrir 15 mánuðum. Í dag eru skrifstofurnar til húsa bæði í Krossmóa í Reykjanesbæ og Turninum í Kópavogi. Fremri röð frá vinstri: Íris Björk Rúnarsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Aðalheiður Níelsdóttir, Lilja Magnúsdóttir, Marín Ósk Hafnadóttir, Arna Grímsdóttir og Petra Lind Einarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Andrea Guðnadóttir, Arna Björg Rúnarsdóttir, Kristín Birna Ingadóttir, Hanna Blanck, Alma Gytha Huntington-Williams, Birna Lárusdóttir, Andrea Ósk Frímannsdóttir, Valdís Guðmundsdóttir og Björk Þórarinsdóttir. Á myndina vantar einungis Katrínu Unni Ólafsdóttur sem er í fæðingarorlofi.
Konurnar í HS Orku samankomnar í Svartsengi í upphafi árs í fyrsta sinn síðan skrifstofur fyrirtækisins þar voru rýmdar vegna jarðhræringa fyrir 15 mánuðum. Í dag eru skrifstofurnar til húsa bæði í Krossmóa í Reykjanesbæ og Turninum í Kópavogi. Fremri röð frá vinstri: Íris Björk Rúnarsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Aðalheiður Níelsdóttir, Lilja Magnúsdóttir, Marín Ósk Hafnadóttir, Arna Grímsdóttir og Petra Lind Einarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Andrea Guðnadóttir, Arna Björg Rúnarsdóttir, Kristín Birna Ingadóttir, Hanna Blanck, Alma Gytha Huntington-Williams, Birna Lárusdóttir, Andrea Ósk Frímannsdóttir, Valdís Guðmundsdóttir og Björk Þórarinsdóttir. Á myndina vantar einungis Katrínu Unni Ólafsdóttur sem er í fæðingarorlofi. — Morgunblaðið/Eyþór

HS Orka er þriðji stærsti orkuframleiðandinn á Íslandi og hefur alla tíð verið frumkvöðull í jarðhitanýtingu og nýsköpun henni tengdri eins og Auðlindagarðurinn okkar ber vitni um,“ segir Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og upplýsingatækni-sviðs HS Orku, og bendir á að um þessar mundir fagni fyrirtækið 50 ára afmæli sínu. „Hér starfar, og hefur starfað, einstakur hópur fólks sem hefur byggt fyrirtækið upp af metnaði og lyft grettistaki til að halda uppi eðlilegri starfsemi síðustu misseri.“

Björk hefur starfað hjá HS Orku frá upphafi árs 2020. „Tómas Már Sigurðsson var þá nýráðinn forstjóri og fjölmörg spennandi verkefni voru í pípunum. Við höfum stækkað umtalsvert frá þeim tíma og þessi fimm ár hafa verið einstaklega áhugaverð, ekki síst reynslan sem við höfum öðlast við rekstur á mikilvægu innviðafyrirtæki, bæði í heimsfaraldri og í

...