Líklega er ekkert annað fyrirtæki í okkar starfsemi með jafnmikið félagslíf og Fastland og ég fullyrði að enginn annar sé með skipaðan þemastjóra í starfseminni.
Starfsfólk Fastlands hefur farið á alls konar námskeið saman, meðal annars sjálfsvarnarnámskeið, þar sem þau fara út fyrir þægindarammann og kynnast betur.
Starfsfólk Fastlands hefur farið á alls konar námskeið saman, meðal annars sjálfsvarnarnámskeið, þar sem þau fara út fyrir þægindarammann og kynnast betur.

Í hverjum mánuði er eitthvað um að vera hjá okkur í Fastlandi, ýmist á vinnutíma þegar við fáum til okkar fyrirlesara um málefni sem nýtast okkur bæði í leik og starfi eða utan vinnutíma þegar við hittumst vikulega í badminton,“ segir Silja Dögg Ósvaldsdóttir framkvæmdastjóri Fastlands sem er með yfir 30 ára reynslu í rekstri fyrirtækja, bókhaldi, uppgjörum og skattamálum. Hún segir mikilvægt að tala um fjármál á mannamáli og að það sé gaman í vinnunni. „Á vinnustaðnum höfum við gott rými, sem við nýtum oft í hádeginu, til að spila borðtennis. Mannauðsstjórinn okkar er einnig jógakennari og markþjálfi og vinnur því markvisst með okkur á marga vegu. Við búum einstaklega vel þegar kemur að mat og næringu, en hjá okkur er matráður sem einnig er einkaþjálfari og sér til þess að við borðum mat við hæfi því sannarlega þarf skrifstofufólk ekki á þungum og miklum mat að halda í hádeginu. Hún vinnur með létta rétti sem henta flestum og

...