Söngsveitin Fílharmonía heldur tónleika í Langholtskirkju undir yfirskriftinni Sólhjartarljóð á laugardaginn, 1. febrúar, klukkan 17. Segir í tilkynningu að þar sé vísað í Sólhjartarljóð úr Óttusöngvum á vori eftir Jón Nordal sem komi til með að…
Söngsveitin Fílharmonía heldur tónleika í Langholtskirkju undir yfirskriftinni Sólhjartarljóð á laugardaginn, 1. febrúar, klukkan 17. Segir í tilkynningu að þar sé vísað í Sólhjartarljóð úr Óttusöngvum á vori eftir Jón Nordal sem komi til með að hljóma ásamt fleiri klassískum perlum, innlendum og erlendum. Þá verður einsöngur í höndum Herdísar Önnu Jónasdóttur og Pétur Nói Stefánsson mun leika á orgel. Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson og miðasala er á tix.is.