Ef það er ekki eitthvert eðalvín þá hljóta það að vera armbandsúr. Um það deilum við Ásgeir Ingvarsson kollegi minn ekki þegar við leggjum á ráðin um það sem birtast skuli hér á þessum vettvangi, viku eftir viku, ár eftir ár
Bak úrsins er hreint listaverk.
Bak úrsins er hreint listaverk.

Hið ljúfa líf

Stefán Einar Stefánsson

ses@mbl.is

Ef það er ekki eitthvert eðalvín þá hljóta það að vera armbandsúr. Um það deilum við Ásgeir Ingvarsson kollegi minn ekki þegar við leggjum á ráðin um það sem birtast skuli hér á þessum vettvangi, viku eftir viku, ár eftir ár. Stundum bregður hann þó út af vananum og fjallar um einhvern ómótstæðilegan herrailminn – og vel á minnst. Það hefur komið fyrir hjá mér einnig.

Í liðinni viku fjallaði Ásgeir um úrin úr smiðju Breitling sem fyrir löngu hafa unnið sér sess sem einhver þekktustu og eftirsóttustu úr heimsins. Þau fylla fáliðaðan flokk lúxusúraframleiðenda sem langflestir koma frá Sviss. Landi sem leggur áherslu á það sem er skemmtilegt; úr, vasahnífa, súkkulaði, ost og bankakerfi.

...