Sumarið verður sígilt hjá báðum tískuhúsum, Timberland og Marc O‘Polo, þar sem hvítur litur, blár og brúnn verður áberandi ásamt nokkrum fallegum litatónum eins og skærbláum, grænum og bleikum. Haustið býður svo alltaf upp á fallega tóna. Þá verður rauður litur, grænn og gulbrúnn áberandi ásamt brúnum, bláum, gráum og svörtum tónum. En eins og viðskiptavinir okkar þekkja þá eru vörurnar sígildar og alltaf í tísku en ég mæli bara með því fyrir alla að koma til okkar og máta,“ segir Guðrún Erla Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Timberland og Marc O‘Polo á Íslandi. „Við hjónin keyptum Timberland árið 2018 en Timberland í Kringlunni var opnað árið 2002 og hefur verið óbreytt þar allar götur síðan. Til að byrja með starfaði ég með fyrrverandi eiganda en tók svo við stjórninni árið 2019. Við opnuðum netverslun Timberland sama ár sem var þá rétt fyrir kórónuveiruna, sem reyndist mikið lán fyrir reksturinn. Við opnuðum svo
...