Stjarnan, toppliðið í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, hefur fengið í sínar raðir reyndan slóvenskan landsliðsmann, Jaka Klobucar. Hann er 37 ára og lék m.a. með slóvenska landsliðinu í lokakeppni EM árið 2015, er 198 cm hár og leikur sem bakvörður eða framherji. Klobucar lék síðast með Olimpija Ljubljana í heimalandi sínu en hefur annars víða komið við og m.a. spilað í Ungverjalandi, Grikklandi, Tyrklandi, Þýskalandi, Ítalíu og Serbíu.