Ég tel að skuldsetning íslensku fasteignafélaganna sé ekki vandamál. Arðsemi fasteignamarkaðarins á Íslandi sé hærri en annars staðar, sem geri hærri skuldsetningu mögulega án aukinnar áhættu.
Bjarni K. Þorvarðarson hefur komið víða við á ferli sínum, bæði hér heima og erlendis.
Bjarni K. Þorvarðarson hefur komið víða við á ferli sínum, bæði hér heima og erlendis. — Morgunblaðið/Eggert

Athafnamaðurinn Bjarni K. Þorvarðarson hefur komið víða við á ferli sínum, bæði hér heima og erlendis. Þrátt fyrir að hafa starfað í ólíkum geirum segist hann ekki líta á ákveðinn geira sem skemmtilegri en annan. Fyrir honum snýst það frekar um hvort verkefnið sé spennandi, hvort um sé að ræða uppbyggingu og hvort hann starfi með góðu fólki.

Bjarni útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands árið 1985, lauk verkfræðinámi frá Háskóla Íslands fjórum árum síðar og hélt svo í meistaranám í verkfræði í Bandaríkjunum. Hann bætti síðar við sig MBA-gráðu í Frakklandi og framhaldsnámi í fjármálum í Bretlandi. Hluti námsins fór einnig fram í Tókýó, sem hann segir hafa verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt.

Meðfram námi starfaði Bjarni hjá IBM, hugbúnaðarmegin. Hann hafði sterkan tæknigrunn en fann sig frekar í viðskiptum og fór því að vinna

...