Að skrá mig í FKA Framtíð er ein besta fjárfesting sem ég hef gert. Dýnamíkin og kvenmátturinn í FKA Framtíð finnst ekki á hverju strái og það sem mér þykir best er að allar félagskonur eru með svipað markmið en það finnst engin samkeppni. Bara stuðningur, samvinna og vinsemd,“ segir Amy Dyer, formaður FKA Framtíðar, en hún gekk í FKA árið 2022 af því að hún var nýbúin að stofna fyrirtæki.
„Ég gerðist auðvitað strax félagskona í FKA Framtíð enda undir þrítugu og fékk 50% afslátt af félagsgjöldum. Eftir tvö ár sem félagskona bauð ég mig fram til stjórnar FKA Framtíðar og hlaut formennsku. Þetta sýnir að konum eru gefin tækifæri innan FKA og að manni raunverulega eru allir vegir færir.“
Allir vegir færir
Aðspurð hver sé tilgangur FKA Framtíðar segir Amy að deildin eigi að vera stökkpallur
...