Forsætisráðherra Serbíu, Milos Vucevic, sagði af sér embætti í gær, en afsögnin kemur í kjölfar mikillar mótmælaöldu í landinu sem hófst eftir að þak á lestarstöð hrundi í nóvember sl. með þeim afleiðingum að 15 manns létu lífið.
Atvikið varð í borginni Novi Sad í norðurhluta landsins, en lestarstöðin hafði áður gengist undir umfangsmiklar endurbætur. Varð slysið því til þess að vekja athygli á spillingu og skorti á eftirliti í byggingariðnaði landsins.
Vucevic, sem var borgarstjóri í Novi Sad þegar endurbæturnar hófust, sagði í gær að hann teldi ríkisstjórn sína hafa staðið sig vel, en að afsögn sín væri leið til þess að draga úr þeirri spennu sem hefði skapast í samfélaginu. Þá sagðist hann hafa tekið ákvörðun sína eftir að ráðist var á hóp mótmælenda og stúdenta í fyrradag með þeim afleiðingum að ein kona særðist
...