Sáttafundir fóru fram í gær í kjaradeilum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við ríkið og sveitarfélögin. Bjarni Ingimarsson formaður LSS segir að fundurinn með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi gengið vel en hins…

Sáttafundir fóru fram í gær í kjaradeilum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við ríkið og sveitarfélögin. Bjarni Ingimarsson formaður LSS segir að fundurinn með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi gengið vel en hins vegar orðið lítill árangur af fundinum með samninganefnd ríksins, en þar er reynt að ná samningi fyrir sjúkraflutningamenn á heilbrigðisstofnunum. „Þetta gekk vel með sveitarfélögunum og mjakast áfram. Boðaður er fundur eftir viku. Við fengum ákveðna heimavinnu til að vinna fram að því. Hins vegar gekk lítið og hægt með ríkinu og ekki talin ástæða til að boða fund fyrr en við hefðum eitthvað meira í höndunum,“ segir Bjarni.

Ef samningar nást ekki fyrir 10. febrúar skella á boðuð verkföll þeirra sem starfa hjá slökkviliðum sveitarfélaganna. Bjarni kveðst þó bjartsýnn á viðræðurnar við sveitarfélögin. omfr@mbl.is