Guðrún Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fastus er leiðtogi sem hefur verið í brú fyrirtækisins frá upphafi.
Guðrún Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fastus er leiðtogi sem hefur verið í brú fyrirtækisins frá upphafi.

Árið 2024 hefur verið viðburðaríkt hjá okkur. Við höfum gengið í gegnum mikilvægt breytingaskeið samruna, endurmörkunar og flutninga. Við höfum horft til framtíðar með skýra sýn: Að byggja upp lifandi fyrirtæki og vera leiðandi afl í þeim geirum sem við þjónum,“ segir Guðrún.

„Fastus var stofnað árið 2006 með það að markmiði að byggja upp traustan grunn fyrir faglega þjónustu og sérfræðiþekkingu á fyrirtækjamarkaði. Nafnið Fastus, sem merkir „stolt“ á latínu, endurspeglar kjarnann okkar og þá trú sem við höfum á þjónustunni og því sem við leggjum okkur fram við að gera,“ segir Guðrún og bætir við að frá stofnun hefur Fastus keyrt starfsemi sína undir einu nafni. „Til að koma til móts við öra þróun og vöxt að undanförnu var þó tímabært að endurskipuleggja og skerpa á áherslum félagsins. Í dag hefur Fastus skipt starfsemi sinni í tvær sérhæfðar

...