Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, var stofnað 9. apríl 1999 og öllum þessum árum síðar skyldi maður ætla að ekki væri lengur þörf fyrir félag af þessu tagi. Jafnrétti á Íslandi og aðstæður hér eru með besta móti en langt frá því að tækifærin séu…
Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, var stofnað 9. apríl 1999 og öllum þessum árum síðar skyldi maður ætla að ekki væri lengur þörf fyrir félag af þessu tagi. Jafnrétti á Íslandi og aðstæður hér eru með besta móti en langt frá því að tækifærin séu jöfn fyrir kynin öll – og eitt er víst að jafnréttið kom ekki af sjálfu sér.
Mörg félög og kvennasamtök kvenna eiga stórafmæli á árinu 2025 og munum við minnast mikilvægra atburða sem tengjast kvennabaráttunni; hálf öld frá kvennaári Sameinuðu þjóðanna, 55 ár frá því að Auður Auðuns varð ráðherra ríkisstjórnar Íslands fyrst kvenna og 50 ár frá fyrsta kvennafrídeginum sem var 24. október 1975.
Við ætlum að taka utan um þessar sturluðu staðreyndir á kvennaári. Spennið beltin! Nánar á kvennaar.is.