Þeir sem vinna við snjómokstur hafa haft nóg að gera á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Eiður Fannar Erlendsson, yfirmaður vetrarþjónustu hjá Reykjavíkurborg, lætur ágætlega af stöðunni. „Já, við höfum séð töluvert magn af snjó síðustu daga…
Hreinsun Ófá snjóruðningstæki sjást á ferðinni þessa dagana.
Hreinsun Ófá snjóruðningstæki sjást á ferðinni þessa dagana. — Morgunblaðið/Eggert

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Þeir sem vinna við snjómokstur hafa haft nóg að gera á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Eiður Fannar Erlendsson, yfirmaður vetrarþjónustu hjá Reykjavíkurborg, lætur ágætlega af stöðunni. „Já, við höfum séð töluvert magn af snjó síðustu daga eftir fremur rólegan vetur hingað til,“ segir Eiður og rekur í grófum dráttum hvernig vinnan gengur fyrir sig.

„Að undanförnu hefur þjónustan hafist klukkan 4 á nóttunni en markmiðið er að það helsta hafi verið mokað um 7.30 til 8, eða þegar fólk vaknar og fer til vinnu eða í skóla. Í rútínunni er hreinsun á stofn- og tengibrautum en einnig stofnstígar. Fólk geti þá farið í vinnu eða skóla á bílum, á hjólum eða gangandi,“ segir Eiður en hafist var handa við að hreinsa húsagötur síðasta sunnudag. „Hentugra er að hefja hreinsun

...