Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tryggir aðgengi að rafmagni, hita, hreinu vatni og fráveitu. Við þjónustum 70% landsmanna með eitthvað af þessum lífsgæðum og erum grunninnviðir í fyrirtækjum landsins,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna. „Við höfum sett frumkvæði, nýsköpun og samstarf í öndvegi og gert þjónustuna að kjarna fyrirtækisins. Í framtíðarsýn okkar er frumkvæði að sjálfbærum lausnum með árangur samfélagsins að leiðarljósi. Við berum ábyrgð á að veita dýrmætum lífsgæðum til fólks og næstu kynslóða, og að passa upp á náttúruauðlindirnar,“ segir Sólrún.
Í þriðja sæti í stærstu þjónustukeppni Evrópu í sínum flokki
Það er áhugavert að tala við Sólrúnu um stjórnun og mannauðsmál. „Að mínu mati er meginviðfangsefni stjórnenda fólk. Hvort heldur sem er viðskiptavinirnir eða starfsfólkið sem þú vilt ná
...