Móeiður Júníusdóttir
Móeiður Júníusdóttir

Söngkonan Móeiður Júníusdóttir eða Móa sendir frá sér nýtt lag á föstudaginn, 31. janúar, að því er fram kemur í tilkynningu. Lagið sem ber heitið „Crazy Lover“ er eftir lagasmiðinn Gunnar Inga Guðmundsson. Þá er textinn eftir Nínu Richter og upptökustjórn var í höndum Stefáns Arnar Gunnlaugssonar.

„Móa var virk í tónlistarsenunni rétt um og fyrir aldamótin 2000 hérlendis og erlendis. Gaf m.a. út jazzplötu, raftónlistarskotið popp með hljómsveitinni Bong og sólóplötuna Universal undir merkjum hins goðsagnakennda bandaríska hip hop/electronic útgáfufyrirtækis Tommy Boy. Móa sneri sér aftur að tónlistinni eftir langt hlé og hefur sent frá sér eigin lög og tekið þátt í samstarfsverkefnum undanfarin ár. Þá tók hún þátt í forkeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins 2023 með laginu „Glötuð ást“.“