Formannsskipti urðu hjá Sameyki – stéttarfélagi í almannaþjónustu í gær þegar Kári Sigurðsson, sem verið hefur varaformaður félagsins að undanförnu, tók við forystu. Ingibjörg Sif Sigríðardóttir, sem gegnt hefur formennsku frá því í október á…
Kári Sigurðsson
Kári Sigurðsson

Formannsskipti urðu hjá Sameyki – stéttarfélagi í almannaþjónustu í gær þegar Kári Sigurðsson, sem verið hefur varaformaður félagsins að undanförnu, tók við forystu. Ingibjörg Sif Sigríðardóttir, sem gegnt hefur formennsku frá því í október á síðasta ári, verður varaformaður, eins og hún var áður. Þá snýr Ingibjörg jafnframt til fyrri starfa hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

„Ég tók þá ákvörðun að vel hugsuðu máli að snúa mér að þeim störfum sem ég hef sinnt áður hjá Orkuveitunni,“ segir Ingibjörg Sif í tilkynningu. Kári Sigurðsson hefur verið í stjórn Sameykis síðastliðin fimm ár. Áður var hann hann trúnaðarmaður hjá Reykjavíkurborg en hann hefur lengi starfað á félagsmiðstöðvum unglinga og verið þar í leiðandi hlutverki. – Stjórn Sameykis er kosin á þriggja ára fresti samkvæmt lögum félagsins. Næsta stjórnarkjör er í mars 2027.

Alls eru um

...