Starfsfólk Travel Connect klárar daginn, sækir börnin sín og á þá ekki eftir að vinna í einhvern tíma á kvöldin. Það er ómetanlegt fyrir okkur.
Ylfa Thordarson, framkvæmdastjóri umbóta hjá Travel Connect, og Kristjana Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, eru konur sem láta til sín taka í atvinnulífinu.
Ylfa Thordarson, framkvæmdastjóri umbóta hjá Travel Connect, og Kristjana Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, eru konur sem láta til sín taka í atvinnulífinu. — Morgunblaðið/Eyþór

Ég er framkvæmdastjóri mannauðs hjá Travel Connect en við erum fyrirtæki sem þjónustar átta vörumerki í ferðaþjónustu. Við erum íslenskt fyrirtæki, með um fjögur hundruð starfsmenn, flestir starfa á Íslandi en við erum einnig með skrifstofur í Stokkhólmi, Edinborg og München,“ segir Kristjana Milla Snorradóttir.

„Ég vinn við að innleiða umbótamenningu í fyrirtækinu. Við erum lítil deild og vinnum þvert á fyrirtækið þar sem við styðjum við allar deildir og vörumerkin okkar. Markmið okkar er að aðstoða aðra í að vaxa í sínu og leggjum við sem fyrirtæki mikla áherslu á umbætur almennt,“ segir Ylfa Thordarson, framkvæmdastjóri umbóta hjá Travel Connect. Milla og Ylfa starfa báðar í framkvæmdastjórn fyrirtækisins sem er eitt umsvifamesta fyrirtækið í ferðaþjónustu á Íslandi.

Þrátt fyrir umsvifin eru margir að þeirra sögn

...