Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eigi sameining Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst að takast er lykilatriði að slíkt skili faglegum ávinningi. Framhaldsvinna við hugsanlega sameiningu þarf að sýna fram á hvort slíkt verði. Þetta segir Logi Einarsson, menningar- og háskólaráðherra, um þá vinnu sem nú á sér stað og miðar að sameiningu háskólanna tveggja sem fyrr eru nefndir. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í síðustu viku hafa tímalínurnar sem þarna er starfað er eftir raskast. Upphaflega var áætlað að sameining gengi í gegn um næstu áramót, en nú er markið að stefna að endanlegri ákvörðun um þetta síðar á líðandi ári.
Nemendur við Háskólann á Akureyri eru um 2.800 og þar eru tvö fræðasvið; það er Hug- og félagsvísindasvið og Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið. Margir nema við skólann til dæmis
...