Ég hef alltaf verið frekar feimin og hef aldrei verið mikið fyrir athygli eða ábyrgð,“ segir Sara Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Kompaníferða. „Frá því ég kom fyrst til Kompaníferða þá var það aldrei á planinu mínu að vinna mig eitthvað upp í fyrirtækinu, mér fannst bara fínt að fá verkefni, leysa þau og vera laus allrar ábyrgðar ef svo má segja. Mér fannst það nóg og ég var sátt,“ segir hún.
„Svo var það árið 2019 sem það kviknaði eitthvað inn í mér, ég fann að ég hefði upp á eitthvað meira að bjóða og mig langaði að taka meiri ábyrgð og láta til mín taka. Ég tala við yfirmann minn og sagði honum hvernig mér leið og hægt og rólega þessi ár hef ég verið að stækka og styrkjast í þá manneskju sem ég er í dag,“ segir Sara og bætir við að hún sé stolt af sér að hafa stigið út fyrir þægindarammann og ákveðið að vilja meira og hafa trú á sér.
...