Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, heimsótti í gær þjóðarleiðtoga Þýskalands og Frakklands, auk þess sem hún fundaði með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Mark Rutte. Var tilgangur ferðalagsins að leita stuðnings leiðtoganna í…
Fundir Frederiksen ræddi við bæði Scholz Þýskalandskanslara (mynd t.v.) og Macron Frakklandsforseta í gær.
Fundir Frederiksen ræddi við bæði Scholz Þýskalandskanslara (mynd t.v.) og Macron Frakklandsforseta í gær. — AFP/Odd Andersen

Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, heimsótti í gær þjóðarleiðtoga Þýskalands og Frakklands, auk þess sem hún fundaði með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Mark Rutte. Var tilgangur ferðalagsins að leita stuðnings leiðtoganna í þeirri milliríkjadeilu sem nú virðist í aðsigi á milli Danmerkur og Bandaríkjanna um yfirráð yfir Grænlandi.

Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir um helgina að hann teldi að Bandaríkin myndu eignast Grænland, en Trump hefur ekki viljað útiloka að beita hervaldi til þess að tryggja yfirráð Bandaríkjanna yfir landinu. Frederiksen tók hins vegar fram í gær að hún teldi enga beina hernaðarógn steðja að Grænlandi eða Danmörku vegna málsins.

Frederiksen hélt fyrst til Berlínar, þar sem hún

...