40 ára Inga Ása er Hafnfirðingur og búsett í Áslandinu. Hún er grunnskólakennari í Hörðuvallaskóla en er í fæðingarorlofi. Áhugamálin eru fjölskyldan, ferðalög og útivist.
Fjölskylda Eiginmaður Ingu Ásu er Ingi Þór Harðarson, f. 1980, framkvæmdastjóri Bílanausts. Börn þeirra eru Styrmir Þór, f. 2015, Júlíus Þór, f. 2018, og Emilía Rut, f. 2023. Foreldrar Ingu Ásu eru hjónin Júlíus Jóhannesson, f. 1961, rafmagnsverkfræðingur og Guðrún Margrét Salómonsdóttir, f. 1964, grunnskólakennari.