Inga Sæland virtist hin rólegasta á ríkisstjórnarfundi í gær, þrátt fyrir að endurgreiðslukrafa opinberra styrkja gæti stefnt Flokki fólksins í þrot og um hana gustaði vegna samskipta hennar við skólastjóra barnabarns hennar
Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Inga Sæland virtist hin rólegasta á ríkisstjórnarfundi í gær, þrátt fyrir að endurgreiðslukrafa opinberra styrkja gæti stefnt Flokki fólksins í þrot og um hana gustaði vegna samskipta hennar við skólastjóra barnabarns hennar. Þegar blaðamann bar að garði stóð Inga fyrir utan fundarherbergið og söng þjóðhátíðarlagið „Lífið er yndislegt“.
Inga var innt eftir því hverju þyrfti að breyta í samþykktum flokksins til þess að hann mætti skrá á stjórnmálasamtakaskrá.
„Við verðum fyrst og síðast að heita stjórnmálaflokkur eftir að nýju lögin tóku gildi.“
En samþykktir flokksins skilgreina hann sem stjórnmálasamtök nú þegar.
...