FKA Viðurkenningahátíðin er haldin árlega við hátíðlega athöfn. Kallað er eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu í árslok þar sem hægt er að tilnefna konur hvaðan sem er úr samfélaginu í einum flokki eða öllum flokkunum. Dómnefnd fær tilnefningar og velur á endanum þær sem hljóta viðurkenningu. Formaður dómnefndar 2025 er stjórnarkona FKA; Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir, eigandi Synia og hugbúnaðarfyrirtækisins GET Ráðgjöf, og með henni í dómnefnd í stafrófsröð: Ásgeir Ingi Valtýsson, markaðsséní og einn stofnenda Popp Up / Edythe Mangindin, ljósmóðir og doktorsnemi, Fæðingarheimili Reykjavíkur / Hildur Petersen athafnakona sem sat í fyrstu stjórn FKA og er Þakkarviðurkenningarhafi FKA 2018 / Jón Björnsson, forstjóri Veritas og stjórnarmaður Boozt og Dropp / Kristján Kristjánsson, fjölmiðlamaður og ráðgjafi, stýrir meðal annars Sprengisandi á Bylgjunni, og Rósa Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá VEX framtakssjóði,
...