Jafnrétti í atvinnulífinu skiptir mig miklu máli. Fyrir mér snýst jafnrétti um tækifæri, sýnileika og stuðning til að konur fái að blómstra í sínu starfi og taka ábyrgð. Það að 50 ár séu liðin frá fyrsta kvennafrídeginum minnir okkur á að jafnréttisbaráttan skilar árangri en hún er líka verkefni sem við þurfum að halda áfram að vinna að; bæði í menningu og stefnu fyrirtækja,“ segir Jónína Birgisdóttir, forstöðumaður þjónustu og dreifingar hjá ELKO. Starf hennar felur í sér ábyrgð á heildarþjónustuupplifun viðskiptavina.
Jónína segir áhugavert að starfa í fyrirtæki sem er stöðugt að skoða hvernig má gera hlutina betur. „Það hafa mörg spennandi verkefni verið í vinnslu hjá ELKO að undanförnu. Mörg þessara verkefna eru með það markmið að bæta þjónustuna okkar til að tryggja enn betri upplifun viðskiptavina. Við höfum tekið í notkun nýtt símakerfi og CRM Dynamics-kerfi, og á
...