Árlegt Jólarölt viðskiptanefndar FKA, sem var haldið 28. nóvember 2024, var afskaplega vel sótt og einkar skemmtilegt. Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir og Hanna Guðfinna Benediktsdóttir stjórnarkonur nefndarinnar eru hér sáttar eftir vel heppnaðan viðburð.

ÍFKA eru starfræktar þrjár deildir, sex nefndir, fimm landsbyggðardeildir og stjórn sem heldur úti mikilvægum hreyfiaflsverkefnum. Félagið telur rúmlega fjórtán hundruð félagskonur og tæplega eitt hundrað af þeim eru í stjórnum, nefndum, deildum og ráðum félagsins um land allt. Meginmarkmiðið er að stuðla að eflingu kvenna í atvinnulífinu, sýnileika þeirra og netagerð er kemur að tengslum innan og utan félags.

Konur eru allskonar og fjölmargar breytur sem koma þar að en á sama tíma og við erum ólíkar er raunveruleiki þarna úti sem sameinar konur og því beinum við athyglinni að því sem sameinar okkur en ekki að því sem sundrar. Að öllu þessu samanlögðu eiga konur að finna sinn stað innan félagsins til dæmis í nefndum sem standa fyrir viðburðum og verkefnum sem falla undir sérgreind hlutverk þeirra og mæta þörfum

...