Vilhjálmur Árnason
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er langstærsta stjórnmálasamkoma Íslands og þó víðar væri leitað sem sést vel á því plássi sem fundurinn fær í þjóðmálaumræðunni. Landsfundurinn er lýðræðissamkoma þar sem um 2.000 landsfundarfulltrúar alls staðar að af landinu, þvert á stéttir og samfélagshópa, koma saman til að ákvarða málefnaáherslur flokksins ásamt því að kjósa forystu.
Undirbúningur þessa mikla fundar sem fer fram í Laugardalshöll 28. febrúar til 2. mars er nú í fullum gangi. Málefnanefndir flokksins eru átta og endurspegla málefnanefndir Alþingis. Stjórnir nefndanna eru kosnar á landsfundi en einnig fá þær liðstyrk frá ýmsum einingum flokksins. Málefnanefndirnar eru nú á fullu að undirbúa drög að ályktunum til að leggja fyrir fundinn og munu þær á næstu dögum auglýsa opna fundi þar sem hinn almenni flokksmaður getur komið
...