Bjarni K. Þorvarðarson
Bjarni K. Þorvarðarson — Morgunblaðið/Eggert

Bjarni K. Þorvarðarson tók við sem forstjóri Coripharma í kjölfar þess að hann hafði verið hluti af fjárfestahópi sem sá tækifæri í að kaupa lyfjaverksmiðju Actavis á Íslandi eftir að Teva, sem átti verksmiðjuna sem áður var í eigu Actavis, ákvað að loka starfseminni. Bjarni lét af störfum sem forstjóri 2020 en starfar nú sem stjórnarformaður.

„Það var mikil sérfræðiþekking á Íslandi í lyfjaiðnaði, og við sáum tækifæri til að nýta þá þekkingu frekar en að láta hana hverfa,“ segir Bjarni.

Hann lýsir því að uppbygging Coripharma hafi ekki verið einföld, en að mikil fjárfesting hafi verið lögð í fyrirtækið. „Við höfum sett yfir 10 milljarða í að byggja þetta upp frá 2018, og það hefur gengið mjög vel,“ segir hann. Þrátt fyrir að framleiðsla lyfja sé oft ódýrari í löndum eins og Búlgariu, Möltu eða Indlandi segir Bjarni

...