Körfuknattleikskonan Sigrún Björg Ólafsdóttir hefur fengið leikheimild hjá uppeldisfélaginu Haukum eftir að hafa leikið í bandaríska háskólaboltanum undanfarin ár. Sigrún, sem á sjö landsleiki að baki, er 23 ára gömul og leikur í stöðu bakvarðar. Þrátt fyrir að hafa fengið leikheimild sagði Kristinn Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, við Morgunblaðið að ekkert væri ákveðið um hvort Sigrún Björg spilaði með liðinu á tímabilinu.