Er nokkuð hætta á því að lesendum fari að þykja of mikið framboð af Javier Milei á síðum ViðskiptaMoggans?
Það er jú ekki nema röskur mánuður síðan vikulegi pistillinn var helgaður argentínska forsetanum og hvernig niðurskurðarverkefnið mikla hefur gengið fyrsta ár Mileis í embætti.
Það verður ekki af Milei tekið að hann er litríkur stjórnmálamaður en það sem gerir hann svo sérstakan er hve afdráttarlaus og skýr hann er í tali sínu um algjöra yfirburði frjálshyggjunnar. Fólk hefur hreinlega ekki heyrt þjóðarleiðtoga tala með þessum hætti síðan Reagan og Thatcher voru upp á sitt besta, og því kannski ekkert skrítið að þegar Milei hélt reiðilestur yfir gestum á ráðstefnu Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar (WEF) í Davos árið 2024 hlaut ræða hans langmesta athygli af öllum dagskrárliðum. Þegar áhorfstölurnar á YouTube eru skoðaðar sést að margar
...