Fjártækni og þróun fjármálaþjónustu verður í brennidepli á viðburði sem haldinn verður í Norðurljósasal Hörpu fimmtudaginn 30. janúar. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Fjártækniklasans.
Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri SFF telur að Ísland hafi alla burði til að verða miðstöð fjártækni á alþjóðavísu.
„Við erum fámenn þjóð en tæknivædd, sem gerir okkur kleift að þróa og prófa nýjar lausnir hratt. Nú þegar eru íslensk fjártæknifyrirtæki að hasla sér völl á erlendum mörkuðum og við sjáum mikla möguleika í að auka enn frekar samstarf og nýsköpun á þessu sviði,“ segir hún.
Ein af stóru breytingunum í tæknibyltingu fjármálageirans sem staðið hefur yfir undanfarin ár er að sögn Heiðrúnar aðgengi að fjármálaþjónustu á einum stað í
...